Vagnhöfði 29 - breyting á deiliskipulagi - SN220544 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lögð fram umsókn UNDRA ehf. dags. 2. september 2022 ásamt greinargerð, dags. 5.
Vagnhöfði 29
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 908
16. mars, 2023
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lögð fram umsókn UNDRA ehf. dags. 2. september 2022 ásamt greinargerð, dags. 5. september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða iðnaðarsvæðis vegna lóðarinnar nr. 29 við Vagnhöfða. Í breytingunni sem lögð er til felst að núverandi byggingar á lóðinni verði fjarlægðar og í staðinn verði heimilt að byggja 7 hæða byggingu þar sem tvær efstu hæðirnar verða inndregnar að stórum hluta. Aðkoma að byggingunni verður bæði frá göturýminu og inngarðinum. Auk þess er gerð lítilsháttar breyting á lóðarmörkum ásamt því að heimilt verði að nota þak sem dvalarsvæði, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum (6 stk.) UNDRA ehf., dags. 5. september 2022. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til afgreiðslu umhverfis- og samgönguráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar viðskipulagsvinnu nr. 1051/2022.