Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 907
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. janúar 2023 var lögð fram umsókn Skurnar ehf. , dags. 7. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Saltvíkur á Kjalarnesi. Í breytingunni sem lögð er til felst í að færa reit C og D til að koma reitunum nær núverandi vegi og koma jafnframt reit C fjær reit B, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. dags. 9. febrúar 2023. Einnig er lögð fram fornleifaskráning Fornleifastofnunar Íslands frá 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 1. mars 2023.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.