Fyrirspurn
Breiðagerði 4 - breyting á deiliskipulagi - SN210405 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Vigfúsar Halldórssonar dags. 31. maí 2021 ásamt greinargerð Stefáns Auðuns Stefánssonar dags. 7 janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigagerðisreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Breiðagerði. Í breytingunni felst að í stað hangandi stálsvala utan á kvistvegg komi verönd sem hvílir á burðavirkjum þaks yfir stofu, samkvæmt uppdr. Vigfúsar Halldórssonar, dags. 13. desember 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. janúar 2023 til og með 13. febrúar 2023. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Gísli Einarsson og Sigrún Benediktsdóttir, dags. 12. febrúar 2023. Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.