Fyrirspurn
Funahöfði 19 - breyting á deiliskipulagi - SN220640 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. október 2022 var lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags 8. október 2022 um breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðarinnar nr. 19 við Funahöfða. Í breytingunni sem lögð er til felst að gerður er nýr byggingarreitur innan lóðar fyrir skýli/dúkhús, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta dags. 19. október 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa.