Háskólinn í Reykjavík - breyting á deiliskipulagi - SN220421 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. f.h. Grunnstoðar / Háskólans í Reykjavík dags. 4. júlí 2022 ásamt br
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 903
9. febrúar, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. f.h. Grunnstoðar / Háskólans í Reykjavík dags. 4. júlí 2022 ásamt bréfi dags. 8. júlí 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans Í Reykjavík vegna lóðarinnar nr. 83-89 við Nauthólsveg. Í breytingunni felst m.a. fjölgun íbúða um 10, úr 415 íbúðum í 425 íbúðir, fækkun byggingarreita fyrir svonefnd stakstæð hús á reit A og B ásamt stækkun á byggingarreit fyrir stakstæð hús og að gert verður ráð fyrir félagsaðstöðu fyrir íbúa háskólagarðanna á fyrstu hæð stakstæðs húss á reit A ásamt því að íbúðir deiliskipulagssvæðisins munu dreifast á reiti A, B og C í stað A, B, C og D áður, en ekki verður gert ráð fyrir íbúðum á reit D, samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta ehf. dags. 14. október 2022. Tillagan var auglýst frá 22. desember 2022 til og með 7. febrúar 2023. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. a. liður 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1224/2022.