Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. janúar 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. janúar 2023 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta glugga í hurð og gera svalir á suðausturhlið íbúðar 0101 með stiga niður í garð tvíbýlishúss á lóð nr. 42 við Nökkvavog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. febrúar 2023.