Engihlíð 9 - (fsp) hækkun á þaki, kvistir og svalir - SN220765
Engihlíð 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 902
2. febrúar, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. janúar 2023 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Gauta Sveinssonar, dags. 21. nóvember 2022, ásamt bréfi hönnuðar dags. 10. nóvember 2022, um hækkun á þaki hússins á lóð nr. 9 við Engihlíð og setja kvisti og svalir, samkvæmt uppdr. Glámu-Kím, dags. 18. nóvember 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. febrúar 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. febrúar 2023, samþykkt.