Fyrirspurn
Kjalarnes, Saltvík - breyting á deiliskipulagi - SN220797 Lögð fram umsókn Skurn ehf., dags. 7. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Saltvík, Kjalarnesi vegna lóðarinnar Saltvík á Kjalarnesi. Í breytingunni sem lögð er til felst í að færa reit C og D til að koma reitunum nær núverandi vegi og koma jafnframt reit C fjær reit B, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. dags. 6. desember 2022. Einnig er lögð fram fornleifaskráning Fornleifastofnunar Íslands frá 2020. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.