Fyrirspurn
Bergstaðastræti 18 - flutningshús - áður Bergstaðastræti 7 - BN061841 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir flutningshúsi á steyptum kjallara, áður Bergstaðastræti 7, húsið verður lengt og hækkað, viðbygging á bakhlið stækkuð og byggð ný viðbygging (inngangur) á suðurgafli sem snýr útidyrin í austur að götu, og innrétta fjórar íbúðir á lóð nr. 18 við Bergstaðastræti. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 9. desember 2022 . Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. janúar 2023, samþykkt. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Bergstaðastræti 18