Fyrirspurn
Ármúli 28 og 30 - sameining lóða - SN220743 Lögð fram umsókn Helga Indriðasonar f.h. Selsins Fasteignafélags ehf., dags. 22. nóvember 2022, um sameiningu lóðanna nr. 28 og 30 við Ármúla. Einnig eru lagðar fram byggingarnefndarteikningar ASK arkitekta dags. 4. október 2022. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.