Fyrirspurn
Norðurbrún 2 - breyting á deiliskipulagi - SN220687 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, dags. 28. október 2022, um breytingu á deiliskipulagi Norðurbrúnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Norðurbrún Í breytingunni sem lögð er gerð textabreyting vegna notkunar á 1. hæð, samkvæmt uppdr. THG arkitekta dags. 4. júní 2018, síðast br. 19. október 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 13. desember 2022 til og með 13. janúar 2023. Engar athugasendir bárust. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.