Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2022 var lagt fram erindi Kópavogsbæjar dags. 2. desember 2022 þar sem vakin er athygli á forkynning á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 fyrir Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð. Tillögunni fylgir m.a. sameiginleg umhverfismatsskýrsla (fskj-1) fyrir tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Vatnsendahvarfs. Erindinu var vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 11. janúar 2023. Umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 11. janúar 2023, samþykkt. Fylgigögn Umsögn deildarstjóra aðalskipulags - Kópavogur - Vatnsendahvarf_Vatnsendahæð