Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25 ágúst 2022 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds, að breytingu á deiliskipulagi Suðurhlíða vegna lóðar nr. 9 við Suðurhlíð, Klettaskóla. Í breytingunni sem lögð er fram felst að byggingarreitur fyrir tímabundnar kennslustofur er stækkaður þannig að hægt sé að fjölga úr fjórum í átta kennslustofur ásamt því að hámarksbyggingarmagn á lóðinni er aukið um 500 fm, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. OG arkitektastofunnar dags. 15. desember 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt er að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Víðihlíð 1-3, 5-11 og 13-15.Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að greiða fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram skv. 7.6. gr. skv. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.