Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. janúar 2023 var lögð fram fyrirspurn Wings Capital hf., dags. 19. október 2022, um að koma fyrir bílskúr á lóð nr. 78 við Bergstaðastræti, samkvæmt tillögu Trípólí Arkitekta dags. 19. október 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. janúar 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 12. janúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Bergstaðastræti 78