Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Friðriks Friðrikssonar f.h. Icecars ehf., dags. 15. nóvember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Breiðholts 3, austurdeild vegna lóðarinnar nr. 5 við Hraunberg sem felst í að skipta upp lóðinni og breyta vinnustofu og bílageymslu í íbúðarhúsnæði, samkvæmt uppdr. Studio F - arkitekta, dags. 15. nóvember 2022. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 12. janúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Hraunberg 5