Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn Háskóla Íslands, dags. 27. október 2022, ásamt bréfi ASK Arkitekta ehf., dags. 7. júní 2022, um breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða til að flýta fyrir uppbyggingu á svæðinu og einfalda. Lagt er til að lóðirnar nr. 1 og 3 við Ingunnargötu verði sameinaðar og að reist verði bygging sem að öllu leyti þjónar hagsmunum samfélagsfræða, nýsköpunar og háskóla. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. janúar 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 12. janúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Háskóli Íslands Vísindagarðar