Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar, dags. 7. september 2022, ásamt bréfi, dags. 7. september 2022, um breytingu á deiliskipulagi  Stekkjarbrekkna-Hallsvegar ve
Lambhagaveg 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 898
5. janúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar, dags. 7. september 2022, ásamt bréfi, dags. 7. september 2022, um breytingu á deiliskipulagi  Stekkjarbrekkna-Hallsvegar vegna lóðarinnar nr. 12 við Lambhagaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að komið er fyrir tveimur nýjum byggingarreitum á lóð fyrir rafmagnshleðslu og sölu á eldsneyti, samkvæmt uppdr. DAP dags. 6. september 2022. Einnig er lagt fram samkomulag Reykjavíkurborgar og Löðurs ehf., dags. 12. apríl 2022. Tillagan var auglýst frá 4. nóvember 2022 til og með 16. desember 2022. Eftirtaldir sendu ábendingar: Veitur ohf. dags. 7. desember 2022. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.