Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram umsókn Indro Indriða Candi og Reitir - iðnaður ehf. dags. 7. nóvember 2022, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skútuvogur a
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 898
5. janúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram umsókn Indro Indriða Candi og Reitir - iðnaður ehf. dags. 7. nóvember 2022, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skútuvogur austur vegna lóðanna nr. 5 og 7-9 við Skútuvog. Í breytingunni sem lögð er til felst annars vegar að minnka tengibyggingu milli húshluta 5 og 7 en bæta þar við stigahúsi og hins vegar að stækka tengibyggingu milli húshluta 7 og 9, samkvæmt uppdr. VA arkitekta dags. 7. nóvember 2022. Einnig lagt fram bréf hönnuða dags. 5. október 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda