Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar, steinsteypta viðbyggingu með hefðbundnu timburþaki við leikskóla á lóð nr. 1 við Þorragötu. Erindi var grenndarkynnt frá 22. nóvember 2022 til og með 20. desember 2022. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Aðalsteinn Leifsson dags. 14. desember 2022 og Sesselja Bjarnadóttir, dags. 20. desember 2022. Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.