Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. október 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060954, þ.e. við suðurgafl er bætt við flóttastiga og útveggir klæddir álklæðningu, viðbyggingu ásamt lyftuhúsi á austurhlið og endurnýjun glugga í matshluta nr. 02 í húsi nr. 6 á lóð nr. 4-6 við Ármúla. Erindi var grenndarkynnt frá 28. nóvember 2022 til og með 3. janúar 2023. Engar athugasemdir bárust. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.