Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Baldurs Ó. Svavarssonar, dags. 19. desember 2022, ásamt minnisblaði, dags. 1. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.0, Bergstaðastrætisreita, vegna lóðanna nr. 4, 4B, 6 og 6B við Spítalastíg. Í breytingunni sem lögð er til felst að kvöð um umferð á lóð Spítalastígs 4 að Spítalastíg 4B verður felld út og Þess í stað verður sett kvöð á allar lóðir um umferð að Spítalastíg 4B í framhaldi af umferðarkvöð á lóð 6. Byggingamagn á Spítalastíg 4 eykst sem nemur flatarmáli undirganga. Byggingarreitur fyrir Spítalastíg 4B og 6B verður færður um 3m til vesturs. Lóðamörkum milli 4B og 6B verður jafnframt breytt þannig að þau skipta byggingarreit í tvo jafna helminga. Lóðastærðir breytast eins og kemur fram í skilmálatöflu og gert er ráð fyrir tveim bílastæðum við austurgafl Spítalastígs 6B, samkvæmt uppdr. Úti og inni arkitekta, dags. 1. desember 2022. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1051/2022.