Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar og Örnu Bjarkar Kristinsdóttur, dags. 1. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Skildinganess vegna lóðarinnar nr. 24. við Bauganes. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka byggingarreit, til austurs, en þó innan gildandi ákvæða, samkvæmt uppdr. Arkþing/Nordic, ódags. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.