Fyrirspurn
Lagt fram erindi Einars Ágústssonar, dags. 13. janúar 2022, þar kærð er sú framkvæmd Orkuveitu Reykjavíkur að tæma með varanlegum hætti stíflulón ofan Árbæjarstíflu í árslok 2020. Einnig er lagt fram svarbréf skipulagsfulltrúa til Einars Ágústssonar, dags. 15. febrúar 2022. Jafnframt er lagt fram bréf skipulagsfulltrúa til Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 6. nóvember 2022, skoðunarskýrsla eftirlitsdeildar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 26. október 2022, og svarbréf Orkuveitu Reykjavíkur til skipulagsfulltrúa, dags. 2. desember 2022. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.