Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf., dags. 14. nóvember 2022, ásamt bréfi, dags. 11. nóvember 2022, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettavæði vegna lóðarinnar nr. 6-8 við Skarfagarða. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóðanna nr. 6, 8 og 10 við Skarfagarða, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta 22. mars 2022. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar viðskipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.