Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. október 2022 þar sótt er um leyfi til að breyta kjallara, þ.e. baðherbergi stækkað, reistur nýr garðskáli við suðvesturhorn íbúðar og komið fyrir nýrri hurð á útvegg að garðskála í húsi á lóð nr. 12 við Kleifarveg. Erindi var grenndarkynnt frá 15. nóvember 2022 til og með 13. desember 2022. Engar athugasemdir bárust. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.