Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Björns Skaptasonar, dags. 17. október 2022, um færslu á spennistöð á lóð nr. 40A við Sigtún, samkvæmt tillögu ódags. Einnig lagt fram bréf hönnuðar f.h. Íslandshótela og Veitna dags. 17. október 2022 og bréf stjórnarformanns f.h. Íslandshótela og Helgalands dags. 26. september 2022. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2022. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. desember 2022, samþykkt.