Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr létt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 897
15. desember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. desember 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr léttu byggingarefni þar sem koma á fyrir eldhúsi og með tengingu út í garð í húsi á lóð nr. 30 við Njörvasund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Njörvasundi 32 og Drekavogi 12, 14 og 16. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.