Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2022 var lögð fram fyrirspurn Sigurjóns Jónassonar og Normu V. Hallgrímsdóttur, dags. 21. nóvember 2022, um hækkun hússins á lóð nr. 19. við Kirkjuteig ásamt því að setja kvisti og svalir á húsið, samkvæmt skissum ódags. Einnig er lögð fram greinargerð ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2022. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. desember 2022, samþykkt. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.