Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. desember 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta búsetuúrræði í mhl. 02 og mhl. 03 á lóð nr. 19 við Laufásveg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Laufásvegi 14, 17, 18, 18a, 19, 20, 22 og 25, Skálholtsstíg 6 og Þingholtsstræti 30 og 34. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.