Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. nóvember 2022 var lagt fram erindi Umhverfisstofnunar, dags. 9. nóvember 2022, um hvort svínabú Stjörnugríss ætti að vera á iðnaðarsvæði frekar en landbúnaðarsvæði og hvort starfsemin samræmist skipulagi Brautarholts á Kjalarnesi. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2022. Umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 6. desember 2022, samþykkt.