Fyrirspurn
Lagður er fram skipulagsuppdráttur og leiðbeiningar frá JVST og Teiknistofunni Tröð, dags. 9. desember 2022, fyrir svæði 3 í Vogabyggð sem afmarkast af Dugguvogi til vestur, Tranavog til norðurs, Súðarvogi og strandsvæði Elliðaárvogs frá austurs til suðurs. Skipulagssvæði Vogabyggðar er eitt af þeim svæðum sem skilgreint er sem þróunarsvæði með breyttri landnotkun, iðnaðar- og athafnasvæði verður miðsvæði og íbúðarbyggð. Þar er stefnt að blöndun byggðar, íbúðar og atvinnustarfsemi með heimildum fyrir atvinnustarfsemi í íbúðarbyggð og íbúðum á miðsvæði. Lögð er rík áhersla á fjölbreytta byggð í manneskjulegum mælikvarða, góð almenningsrými og tengsl við aðliggjandi útivistarsvæði. Þannig verður hverfið eftirsóttur valkostur fyrir fólk sem kýs að búa og starfa í umhverfi sem einkennist af hvoru tveggja í senn, borgarbrag og nálægð við náttúru. Skipulagssvæði Vogabyggðar er hluti af stærra þróunarsvæði við Elliðaárvogs og Ártúnshöfða. Markmið skipulagstillögu: Varðveita og styrkja hið heildstæða yfirbragð sem byggðin býr yfir í dag og stuðla að manneskjuvænu umhverfi innan svæðisins í Kænuvogi, með áherslu á aukinn gróður og vandaðri hönnun þegar byggð er við eða ofan á byggingar. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.