Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn Hjalta Brynjarssonar, dags. 3. nóvember 2022, um hvort heimilt sé að byggja tvílyfta viðbyggingu á lóð nr. 40 við Hjallaveg, samkvæmt tillögu Nordic dags. 2. nóvember 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2022. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. desember 2022, samþykkt.