Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum framkvæmdum, þ.e. niðurgrafin steypt kartöflugeymsla vestan við núverandi bílgeymslu, jafnframt er sótt um leyfi til að stækka bílgeymslu í matshluta nr. 02, um er að ræða síkkun á undirstöðum og gera kjallara, aðgengi um tröppur vestan við núverandi skúr við hús á lóð nr. 11 við Grundargerði. Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.