Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. nóvember 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steypt fjölbýlishú
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 896
8. desember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. nóvember 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. nóvember 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steypt fjölbýlishús með 96 íbúðum, í fjórum byggingum ásamt bílgeymslu í einum matshluta, byggingarnar bera merkingu A-B-C og D og skiptist svo, í stigagangi A eru 21 íbúð á 4-6 hæðum, í stigagangi B eru 30 íbúðir á 7 hæðum, í stigagangi C eru 28 íbúðir á 6 hæðum og í stigagangi D eru 17 íbúðir á 6 hæðum, geymslur, tæknirými og bílgeymsla er í kjallara matshluta nr. 01 og inngarði bygginga, öll þök húsa eru flöt og útveggir einangraðir og klæddir álklæðningu að utanverðu á lóð nr. 7 við Eirhöfða. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. desember 2022. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. desember 2022, samþykkt.