Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð er fram að nýju tillaga Yrki arkitekta ehf. dags. 16. júní 2021, br. 23. maí 2022, að deiliskipulagi fyrir Heklureit, nánar tiltekið lóðirnar við Laugaveg 168-174a. Í tillögunni eru settar fram skipulagslegar heimildir fyrir íbúðir, atvinnustarfsemi og gististarfsemi. Gert er ráð fyrir að allar byggingar á lóð Laugavegs 168 til 174a verði fjarlægðar að undanskyldu borholuhúsi. Byggðin er mótuð með tilliti til landslags, sólargangs og veðurfars. Byggðin rís hæst til norðurs við Laugaveg og er lægst til suðurs við Brautarholt. Um er að ræða íbúðarhús, 2ja til 7 hæða, með möguleika á 8. hæð á norðvesturhorni Laugavegs 168 á reit A skv. fyrirliggjandi skipulagstillögu. Byggingarnar skulu vera stallaðar með ríku tilliti til sólarátta og byggð skipulögð þannig að miðlægur inngarður sé í góðu skjóli fyrir veðri og vindum við allar byggingar. Gert er ráð fyrir sérafnotaflötum fyrir íbúðir á jarðhæðum og svölum á efri hæðum. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir allt að 463 íbúðum með verslun og þjónustu á 1. hæð. Heildar flatarmál ofanjarðar á lóðunum er 46.474 m2. Þar af eru að hámarki 44.351 m2 undir íbúðir og lágmarki 2.123 m2 undir verslanir og þjónustu. Einnig lögð fram Húsakönnun Borgarsögusafns dags. 2017 og umhverfismat áætlana dags. febrúar 2018. Tillagan var auglýst frá 22. júlí 2021 til og með 6. september 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Jóhannes Þórðarson og Sigurbjörn Kjartansson dags. 5. september 2021, íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 6. september 2021 og Veitur dags. 6. september 2021. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2022. Lagt er til að tillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögninni.
Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2022. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er ljóst að verulegt skuggavarp verður í inngörðum á Heklureit og mun birtan ekki uppfylla skilyrði nýsamþykkts aðalskipulags Reykjavíkurborgar. Athugasemdir hafa komið fram í auglýsingaferlinu um að birtuskilyrði verði lítil. Það er ekki góður bragur á því afgreiða svona stórt mál að afloknum kosningum áður en nýr borgarstjórn hefur tekið við.
Björn Ingi Edvardsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
- Kl. 9:02 tók Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir sæti á fundinum og aftengdist fjarfundar-búnaði.
(B) Byggingarmál