Fyrirspurn
Borist hefur fulltrúa Flokks fólksins ábending um að á göngugötum sem nú hefur verið fjölgað í miðbænum er mikið um rafmagnshlaupahjól. Sumir eru farnir að tala um þessar götur meira sem rafhlaupahjólagötur frekar en göngugötur. Rafhlaupahjól geta farið hratt og eru þau t.d. bönnuð á Strikinu í Kaupmannahöfn sem dæmi. Ábendingar hafa borist að margir á rafhlaupahjól aka þessar götur mjög hratt og jafnvel með börn á þeim án hjálma. Fulltrúi Flokks fólksins hefur áður rætt um slysatíðni í tengslum við rafmagnshlaupahjól sem náð geta allt að 20 km hraða og jafnvel meira. Það er ekki bara nóg að fagna þessum skemmtilega samgöngumáta heldur þarf að fræða um hvernig nota á þessi hjól og skoða hvar öruggast er að þau séu notuð. Flokkur fólksins spyr hvort ekki þurfi að skoða þessi mál nánar, beita sér fyrir reglum sem eru t.d. meira í takt við reglur um sambærileg mál í löndum sem við berum okkur saman við?
Frestað.