Fyrirspurn
Lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2022.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Í þessu máli verður fjöru fórnað, enn einni. En Björgun mun taka að sér vinnu við landfyllingar. Hér verður með þessari uppbyggingu gengið verulega í fjöru í Reykjavík. Það þykir fulltrúa Flokks fólksins leitt og stemmir auk þess ekki við „grænar áherslur.“