Tillaga skipulags- og samgönguráðs, um að torgið á horni Garðastrætis og Túngötu verði kennt við Kænugarð/Kýiv         Mál nr. US220098 Lögð fram svohljóðandi tillaga skipulags- og samgönguráðs: Lagt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 135
27. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 22. apríl 2022.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fyrirspurnin er frá ágúst 2019 og nú er loks að koma svar. Spurt var „Hvaða framtíðar hugmyndir eru hjá Reykjavíkurborg um landsvæðið á Hólmheiði?“ Í svari segir að gert sé  ráð fyrir því að Hólmsheiði verði að megninu til útivistarsvæði Reykvíkinga en svæðið hefur þjónað fjölbreyttum hópi útivistar iðkenda um árabil. Fulltrúi Flokks fólksins telur  að öll svæði sem ekki er byggt á séu nú eins konar útivistarsvæði. Svo það eru engin stórtíðindi. Var þetta svæði annars gert að útivistarsvæði með formlegum hætti? Um tíma var rætt um að þarna kæmi  flugvöllur. Þarna gæti komið allt mögulegt ef því er að skipa t.d. íbúðabyggð, hverfi með tilheyrandi atvinnutækifærum? Ætti  ekki að ræða þetta við borgarbúa?