Fyrirspurn
Lögð fram drög, ódags., að erindisbréfi um starfshóp um varanlegan regnboga á áberandi stað í miðborg Reykjavíkur.
Samþykkt.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Skipulags- og samgönguráð samþykkti þann 3. júlí 2019 að regnboginn á Skólavörðustíg fengi varanlegt heimili þar. Þann fjórða júní 2019 samþykkti borgarstjórn samhljóða að festa regnbogann varanlega. Í hugum margra tengist regnboginn við Skólavörðustíg í dag. Það vekur því undrun að verið sé að hrófla við þessu fyrirkomulagi sem hefur átt breiðan stuðning og fara með regnbogann á flakk eða flytja hann á ótilgreindan stað. Vonandi næst sátt og niðurstaða um að hrófla ekki við varanlegu heimili regnbogans á Skólavörðustíg.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Verið er að leita að staðsetningu fyrir regnbogann, aftur. Hér er greinilega um stór pólitískt mál að ræða? Borgarfulltrúi hefur ekkert á móti slíku ferli og því síður regnbogahugmyndinni en finnst þetta ekki vera einkamál umhverfis- og skipulagssviðs eða skipulags- og samgönguráðs. Þetta er sameiginlegt málefni borgarbúa og ekki er rétt að ráð og svið borgarinnar liggi á svona ákvörðun eins og ormur á gulli og telji þetta sitt einkamál. Flokkur fólksins mælist til þess að meirihlutinn tali almennt séð meira við borgarbúa og leyfi þeim að taka þátt í framkvæmdum og ákvörðunum sem og hinum ýmsu skreytingum í borginni. Þetta ferli hefði átt að vera opnara. Spyrja á fólkið hvað því finnst og ekki síst þá sem búa við þær götur sem koma til álita.