Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Gunnars Sigurðssonar dags. 9. maí 2021 ásamt minnisblaði dags. 30. apríl 2021 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 34-36 við Borgartún. Í breytingunni felst að byggingarmagn er aukið og íbúðum fjölgað, samkvæmt uppdráttum (5 uppdr.) Tvíhorfs ehf. dags. 3. júní 2021, br. dags. 28. janúar 2022. Einnig er lögð fram greinargerð Andakt arkitekta dags. 28. janúar 2022 þar sem gerð er grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa síðan tillagan var samþykkt í kynningu m.a. hefur íbúðum fækkað um 2, úr 102 í 100, og salar- og hámarkshæð hækkað um 1-1,65 m. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Um er að ræða lóðina Borgartún 34-36. Fækka á íbúðum um tvær. Fulltrúi Flokks fólksins veltir fyrir sér hvort ráðlagt sé að setja svo margar íbúðir í eitt hús. Fordæmi er varla fyrir þessu í Reykjavík nema kannski má finna eitt dæmi. Fulltrúi Flokks fólksins finnst þéttingarstefna meirihlutans ganga ansi langt hér og óttast þrengsl og umferðarvandamál.
Lilja Grétarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
(B) Byggingarmál