Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu, um viðgerð á göngustíg         Mál nr. US220088
Síðast Frestað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 134
6. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að farið verði í viðgerð á göngustíg sem liggur í gegnum Fellin frá Rjúpufelli að Yrsufelli. Fulltrúi Flokks fólksins hefur fengið ábendingar um að þarna þarf viðhald og almenna hreinsun. Reynt hefur verið að vekja athygli borgarinnar á þessu en ekki tekist. Um er að ræða stíg sem liggur í gegnum eitt þéttbyggðasta svæði í Reykjavík. Það nota mjög margir þennan göngustíg og þarfnast hann viðgerðar og hreinsunar þegar sú tíðin er. Oft hefur verið glerbrot á stígnum, rusl og lauf á haustin. Líklegt þykir að þessi stígur hafi hreinlega gleymst  hjá borginni því enginn kemur og sópar hann hvað þá lagfærir hann.
Frestað.