Fyrirspurn
Kynning fulltrúa Strætó bs. á leiðarkerfisbreytingum og breytingum vegna framkvæmda við Hlemm.
Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Það er miður að sjá tímabundna niðurfellingu á síðustu feðrum Strætó en ljóst er að vegna heimsfaraldurs hefur rekstur Strætó beðið mikið tekjufall sem ekki hefur verið bætt af ríkinu og ekki er mögulegt að brúa það bil öðruvísi en með því að draga saman þjónustu eða eigendur leggi inn aukið fjármagn, en ekki hefur náðst samstaða um það á eigendavettvangi. Við fögnum því hins vegar að framkvæmdir við Borgarlínu eru að hefjast og þökkum Strætó fyrir góðan undirbúning fyrir þær framkvæmdir. Mikilvægt er að tímabundnar endastöðvar þjóni Hlemmi, Lækjargötu og háskólasvæðinu vel og séu staðsettar í borgarumhverfi en ekki á auðum bílaplönum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Það lýsir ákveðinni uppgjöf að lagðar séu til svo miklar skerðingar á leiðakerfi Strætó. Nú þegar hefur stoppistöðvum verið fækkað, tíðni minnkuð og síðustu ferðir felldar niður. Hér blasa við frekar þjónustuskerðingar sem farið er í vegna kostnaðar við borgarlínu. Verri þjónusta mun leiða til þess að færri taki Strætó en sumar breytinganna sem lagðar eru til fela í sér talsverðar þjónustuskerðingar við farþega. Meðal annars er lagt til að færa stoppistöðvar fjær atvinnu- og íbúðasvæðum í miðborginni. Breytingarnar koma sér til að mynda illa fyrir íbúa í austurborginni sem taka almenningssamgöngur í miðbæinn. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gera kröfu um áreiðanleika í leiðakerfi telja að á eigendavettvangi Strætó þurfi að fara fram umræða um fjárþörf Strætó. Það er pólitísk ákvörðun að skerða þjónustu Strætó og að setja framkvæmdir við borgarlínu framar þörfum farþega Strætó.
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Það er forkastanlegt að skerða þjónustu Strætó. Það bitnar á þjónustuþegum af fullum þunga. Þessar aðgerðir eru vegna skorts á farþegum. Enn einu sinni er verið að hræra upp í leiðakerfinu og loka á endastöðinni á Hlemmi og henda á farþegum út á vergangi á Skúlagötu. Þetta þýðir aðeins eitt: Farþegum á eftir að fækka enn frekar – nógu slæmt er nú ástandið samt. Stjórn strætó ræður ekki við þetta verkefni og hugsa þarf rekstur Strætó alveg upp á nýtt. Reksturinn er í mikilli óreiðu – bæði fjárhagslega og skipulagslega. Verið er að leysa málin frá degi til dags og engin framtíðar – eða lokasýn. Það er stjarnfræðilega ruglað að vera að tala um og skipuleggja hina svokölluðu borgarlínu við þessar aðstæður í almenningssamgöngum. Það er ekkert hægt að tala um „tímabundið millibilsástand“ þar til borgarlína kemur – hún kemur ekki fyrr en eftir áratugi og leysir ekki almenningssamgöngur í nútíðinni og langri næstu framtíð.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Nú er svo komið að Strætó bs. þarf að minnka þjónustutíma og þjónustustig Strætó vegna aðhaldsaðgerða í rekstri félagsins. Meðal annars þarf að draga úr tíðni dagferða á einhverjum leiðum og gera breytingar á kvöldferðum á fjölda leiða. Gert er ráð fyrir að með breytingunum sparist rúmlega 200 milljónir króna í rekstri en Strætó situr uppi með 454 milljóna króna halla. Tap síðustu tveggja ára nálgast milljarð. Í tilkynningu frá Strætó bs. segir að Covid-faraldurinn hafi leikið rekstur Strætó grátt og tekjur hafi minnkað um allt að 1,5 milljarða króna á síðustu tveimur árum. Ekki er ein báran stök. Í miðju Covid eru teknar fjárfrekar ákvarðanir, fjárfest í nýju greiðslukerfi og fjölgað í flotanum með þeim afleiðingum að draga þarf úr þjónustunni. Það er margt skrýtið í rekstri Strætó bs. sem er byggðasamlag nokkurra sveitarfélaga og á Reykjavík stærsta hluta þess. Reksturinn er óvenjulegur því fátítt er að bæði stjórn og skipulagning þjónustunnar ásamt akstri vagna sé á sömu opinberu hendinni. Þetta kemur m.a. fram í nýlegri skýrslu sem VSB verkfræðistofa vann fyrir Strætó. Strætó sinnir báðum þessum hlutverkum í dag án nokkurra skila á milli mismunandi þátta rekstrarins, en fyrirtækið útvistar þó um helmingi af öllum akstri sínum til annarra.
Sólrún Svava Skúladóttir og Valgerður Gréta Benediktsdóttir frá Strætó bs. og Bjarni Rúnar Ingvarsson ráðgjafaverkfræðingur taka sæti á fundinum undir þessum lið með rafrænum hætti.
- Kl. 10:18 víkur Örn Þórðarson af fundi.- Kl. 10:18 tekur Eyþór Laxdal Arnalds sæti á fundinum.