Bókun fulltrúa í íbúaráði Miðborgar og Hlíða, um umferð stærri ökutækja í miðborginni - MSS22030200         Mál nr. US220081 Lagt fram bréf íbúaráðs Miðborgar og Hlíða, dags. 23. mars 2022, um umferð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 134
6. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis, dags. 25. mars 2022, um erindi Foreldrafélags Breiðagerðisskóla um kröfu um aukið umferðaröryggi við Breiðagerðisskóla.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir erindi Foreldrafélags Breiðagerðisskóla og bréf Íbúaráðs Háaleitis- og Bústaðahverfis um að auka umferðaröryggi við Breiðagerðisskóla. Hraðahindranir eru oftast besta leiðin til að draga úr umferðarhraða. Alls staðar þar sem börn eru þarf að tryggja umferðaröryggi með öllum ráðum.