Fyrirspurn
Nú liggja í loftinu miklar breytingar varðandi staðsetningu á vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar vegna áforma um fyrsta áfanga Borgarlínu. Malbikunarstöðin Höfði er að flytja til Hafnarfjarðar. Knarrarvogur 2 var keyptur fyrir nokkrum dögum vegna Borgarlínunnar. Þjónustumiðstöðin við Stórhöfða 7-9 mun þurfa að víkja vegna Borgarlínustöðvar á Höfða og aðstaða vetrarþjónustu á Þórðarhöfða 4 þarf að leggjast af. Því er spurt: 1. Hversu lengi er áætlað að saltgeymslan og önnur starfsemi vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar verði á Þórðarhöfða 4. 2. Er slík starfsemi í gangi annars staðar á vegum Reykjavíkurborgar. 3. Hvað er Reykjavíkurborg með mikið húsnæði á leigu við Þórðarhöfða 4, af hverjum og hver er leigukostnaðurinn. 4. Hvert er áætlað að starfsemin á Þórðarhöfða 4 fari þegar framkvæmdir við Borgarlínu og aðra uppbyggingu hefst. 5. Þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar er við Stórhöfða 7-9. Er lóðin og húsnæðið þar í eign borgarinnar og hversu lengi er áætlað að þessi starfsemi verði þar, en ein stærsta stoppistöð Borgarlínunnar og leið hennar liggur í gegnum þessa lóð. 6. Ef um er að ræða leigu á aðstöðu Reykjavíkurborgar við Stórhöfða 7-9, af hverjum er leigt, hversu lengi og hver er leigukostnaðurinn. 7. Hvert er áætlað að starfsemin við Stórhöfða 7-9 flyti þegar framkvæmdir við borgarlínu og aðra uppbyggingu á svæðinu hefst.
Frestað.