Vetrarþjónusta á götum og göngu- og hjólastígum,          Mál nr. US220036 Kynning á vetrarþjónustu á götum og göngu- og hjólastígum í Reykjavík. Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata legg
Síðast Frestað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 129
23. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Fram hefur komið frá umhverfis- og skipulagssviði að skoða eigi enn frekar með opnum huga mögulegar lausnir til að koma til móts við umkvartanir hagsmunaaðila. Gera á athuganir með hönnuðum verksins og utanaðkomandi ráðgjöfum. Eftir það á að boða hagaðilum til fundar og kynna niðurstöðuna. Þessi svör og viðbrögð eru einfaldlega ekki nógu góð að mati fulltrúa Flokks fólksins. Spurt er hvort það standi fyrir dyrum að Sviðið gera athuganir á sjálfu sér? Einnig er spurt hvar samráð er statt í öllu þessu máli eins og einmitt hefur verið tiltekið að eigi að hafa í umsögn fyrir framkvæmdaleyfi frá Umhverfis- og skipulagssviði?
Frestað.