Vitastígur 9 og 9A, breyting á skilmálum deiliskipulags     (01.174.0)    Mál nr. SN210809 Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 8. desember 2021 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags re
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 129
23. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar dags. 8. desember 2021 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags reits 1.174.0 vegna lóðanna nr. 9 og 9A við Vitastíg. Í breytingunni felst niðurrif húsanna og enduruppbygging ásamt hækkun á nýtingarhlutfalli og byggingarmagni lóðanna, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 1. desember 2021. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. október 2021 og 15. nóvember 2021. Lagt til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.