Vesturbæjarsundlaug, breyting á deiliskipulagi     (01.526.1)    Mál nr. SN220054 Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. febrúar 2022 vegna samþykktar borgarráðs s.d. á breytingu á deiliskipulagi Vestu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 129
23. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga Flokks fólksins að skipulags- og samgöngusvið kanni öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem fara fram hjá útgönguleiðum bílastæðahúsa. Vegfarendur sjá ekki að bíll er á leiðinni út, enda ekið út úr húsi. Oft hefur legið við slysi þegar bíll kemur akandi út úr bílastæðahús/kjallara og ökumaður gætir ekki að því að á sama tíma gæti hjólandi eða gangandi vegfarandi verið að fara fram hjá. Þarna þarf að merkja vel báðu megin frá, bæði fyrir ökumann sem er að aka út úr bílastæðahúsi, að hann sé minntur á að aka löturhægt út þar sem gangandi eða hjólandi gæti verið að fara fram hjá. Að sama skapi þarf að vera áberandi skilti á gangstétt áður en kemur að útkeyrslu bílastæðahúss þar sem náð er athygli vegfarenda að bíll gæti skyndilega ekið út úr bílastæðahúsinu.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, bílastæðasjóðs.