Fyrirspurn
Fyrirspurn frá Flokki fólksins um orkukosti í samgöngum. í Loftslagsstefnu Reykjavíkurborgar eru meðal annars nefndir orkukostir í samgöngum þar sem ekki er annað að sjá að notkun rafmagns, vetnis, metans og rafeldsneyti séu lagðir að jöfnu. Þekkt er að metan er verðlaust á söfnunarstað og rafmagn er góður kostur. Rafmagni er hægt að hlaða á rafgeyma og það má einnig nota á farartæki sem eru sítengd við rafmagn. Bæði lestir og strætisvagnar eru knúin með þessum hætti víða um lönd. En notkun vetnis og rafeldsneytis er ekki eins útbreitt. Fulltrúi Flokk fólksins spyr um samanburð á orkugjöfunum metani, rafmagni, vetni, og rafeldsneyti. Hver er orkunýting við framleiðslu vetnis og rafeldsneytis? Hafi slíkur samanburður ekki verið gerður er farið fram á að það verði gert, annars er ekki hægt að bera kostina saman.
Frestað.