Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Ragnars Auðuns Birgissonar dags. 11. ágúst 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Háaleitisbraut 1. Í breytingunni felst að í stað skrifstofuhúsnæðis í suðaustur hluta lóðarinnar kemur nýtt íbúðarhús með 29 íbúðum. Íbúðir á reitnum verða því samtals 76. Bíla- og hjólastæðakröfur breytast m.t.t. fjölda íbúða og núverandi byggingar, Valhallar, en skilgreiningar per íbúð/fm helst óbreytt. Byggingarreitur nýs íbúðarhúss er skipt upp í ytri og innri byggingarreit ásamt því að byggingarmagn eykst o.fl., samkvæmt. uppdrætti THG arkitekta ehf. dags. 26. júlí 2021. Einnig er lögð fram breytt tillaga THG arkitekta, móttekið dags 18. nóvember 2021, m.a. hefur húsformi verið breytt og íbúðum fækkað. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Samfylkingarinnar, Hjálmar Sveinsson, situr hjá.Vísað til borgarráðs.
Lilja Grétarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum með rafrænum hætti.