Miklabraut í stokk, hugmyndaleit, kynning     (01.82)    Mál nr. SN210481 Kynntar tillögur og hugmyndaleit um uppbyggingu á og við áætlaðan stokk á gatnamótum Miklubrautar og Bústaðavegar. Fulltrúar S
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
26. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Miklabraut í stokk, hugmyndaleit, kynning     (01.82)    Mál nr. SN210481 Kynntar tillögur og hugmyndaleit um uppbyggingu á og við áætlaðan stokk á gatnamótum Miklubrautar og Bústaðavegar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Hönnun á Miklubraut í stokk er enn á frumstigi þó það séu komnar fram hugmyndir um uppbyggingu á yfirborði. Nú er kjörtímabilinu brátt að ljúka án þess að hönnun á stokkalausnum hafi farið fram og er því kostnaður og tími framkvæmda óljós með öllu. Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun: Lýst er yfir miklum áhyggjum af umferðarflæði og aðkomu að Landsspítalanum þegar og ef Miklabraut verður lögð í stokk. Engar lausnir eru kynntar varðandi þau mál. Áætlað er að stokkurinn verði 1,4 km. langur. Það sjá það allir í hendi sér að þetta verður gríðarlega flókið verkefni ef af verður. Hér er ekki gætt að öryggissjónarmiðum og er það mikið ábyrgðarleysi. Hvergi er útfært hvernig neyðarakstri að Landspítalanum verði háttað. Á fundinum voru kynntar nýjar hugmyndir um að ný samgöngumiðstöð eigi að koma þar sem mislægu gatnamótin á Hringbraut/Snorrabraut. Það skýrir sannarlega hvað Reykjavíkurborg hefur dregið lappirnar í að skapa umgjörð að byggja nýja samgöngumiðstöð á BSÍ reitnum. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Með því að setja umferðaræð í stokk má minnka helgunarsvæði vega og þar með að auka möguleika á byggingum og svæðum til ýmissa nota. Þar liggja jákvæðir möguleikar. Að leggja veg í stokk er afar dýr framkvæmd.  Ef andstaða gegn  svo mikilli þéttingu er mikil munu ekki koma til tekjur af lóðasölu meðfram Miklubrautinni. Vandséð er að með því að leggja veg í stokk muni umferðarflæði aukast. Ef ekki eru gerðar ráðstafanir við báða enda stokksins mun umferðarflæði ekki aukast heldur munu biðraðir aðeins færast til. Inni í stokknum munu hundruð bíla bíða. Bílvélar í hægagangi menga loft sem einhvers staðar mun þurfa að vera, en bílarnir komast á sama tíma ekkert áfram. B